Aðalvalmynd

Laila komin heim!!

14. mars 2009 klukkan 17:22
Jæja best að koma með smá fréttir....

Laila er sem sagt komin heim...reyndar fyrir tæpum mánuði síðan :) og hún er ALGJÖRT ÆÐI.. hún er alveg hrikalega falleg og flott og það sem betra er, er að hún er með svoooo gott skap, ferlega opin og skemmtileg. Hún aðlagast mjög vel og strákarnir taka henni vel.. þeim fannst hún svoldið mikill kjáni fyrst en eru orðnir vanir henni núna og leyfa henni að vesenast í sér.

Litla sænska daman mín tók uppá því að lóða tæpum tveimur vikum eftir að hún kom heim.. og úfff ekki skemmtilegt.. Prinsinn sem er að mínu FULLKOMINN hundur Smile var á köflum að gera mig crazy.. greyið hann átti svoooo erfitt og ÉG líka Smileþetta er sem betur fer að ganga yfir, eru búin að fá að vera saman í dag.. en fylgst VEEEEEL með þeim og þau sýna hvort öðru engan áhuga.. sko þannig áhuga.
Rocky gleymdi því stundum að það væri búið að taka af honum kúlurnar en sem betur fer var það ekki oft.
Ég beið alltaf eftir því að Laila yrði algjör drusla.. svona eins og Tjúatíkurnar sem ég þekki verða Smile en það bara gerðist ekki, hún svona sýndi sig aðeins og í morgun/nótt hætti Prinsinn að væla og þykir hún ekkert spennandi núna, þannig að ég hringdi í Halldóru Reykdal og ég hugsa að það hafi verið símtal númer svona 100 síðan lóðaríið byrjaði og spurði út í þetta..h..élt að Laila mín væri bara eitthvað óeðlileg..en tjúatíkur geta víst verið mjööög slöttí og ekki allar tíkur sem verða þannig..og auðvita er Laila mín ekki þannig!! Wink

Ég útskrifaðist frá HÍ 28.feb og er núna loksins orðin ÞROSKAÞJÁLFI.
Tveir af mínu stærstu draumum rættust í Feb 2009, eða eiginlega þrír... ég útskrifaðist úr Háskóla sem Þroskaþjálfi, eitthvað sem ákvað þegar ég var bara lítil stelpa..eignaðist Exigor's hund og ég eignaðist tík undan Exigor´s Outstandig O'Nessa.. Þannig að núna verð ég að setja mér ný markmkið og eiganst nýja drauma.. er eiginlega búin að því... Masterinn, einhverfuráðgjöf og Afghan eru næst á dagskrá!Smile


Prinsinn og Laila að leika sér!!


Fallegasta skvísan!!


Tríióð!!



Njótið!! Smile

Styttist í Lailu!! ;)

12. febrúar 2009 klukkan 21:04


Litla dúllan mín að hvíla sig inná hótelherbergi.. eftir að það var orðið ljóst að við kæmust ekki heim ,,í dag,,!! Smile

Fallega stelpan mín..sem kemur heim á þriðjudaginn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Smile

Kv
Elsa

Gleðileg jól!!

24. desember 2008 klukkan 15:26

Fallegasta barnið!! :)

16. nóvember 2008 klukkan 21:21
Litla bjútið mitt var sýnd aftur í dag og endaði BIG-2..hún er svo mikið fínust..fékk alveg frábæra umsögn.
Ég er svo montin af henni og er orðin ekkert lítið spennt að fá hana hingað heim!!
Montmynd!!


Fallegust!!!!

Kv Elsa

Mont fréttir!! ;)

10. nóvember 2008 klukkan 21:17
Best að monta sig aðeins, Laila hóf sýningarferil sinn um helgina og get ég ekki annað en verið bara nokkuð sátt. Hún varð BOB puppy(4-6mán) að sjálfsögðu með HP og frábæra umsögn á laug-Höstsshow Svenljunga og á ,,Malmö valp,, varð hún besta tík í sínum flokki með HP og aftur með frábæra umsögn og endaði svo sem 4.besta tík af öllum MP tíkunum(4-12mán).
Exigor's Ivalena varð BOB á Malmö sýningunni. Annette átti bestu tík í öllum aldursflokkum..frábært helgi hjá henni...eins og svo oft áður.

Hún sendi mér nokkrar myndir..ekki alveg þær bestu en...


Laila BOB puppy Wink


Annette og Laila.. ein ekki alveg að vilja standa fín!!

Flott stelling;).. æ maður er nú bara NÝ orðin 4.mán


Standa fín..eða svona næstumSmile

Nóg af LailuSmile

Helgin afstaðin og var hún alveg hreint ágæt..ég fór á laugardaginn og kíkti á það allra allra krúttlegasta í heimi.. 10.vika afghan hvolpur...GAD.. það gerist ekki fallegra og ég get ekki beðið eftir að eignast einn slíkan sem verður vonandi fyrr en seinna..yrði mun fyrr ef ég fengi einhverju um það ráðið..en ég ræð víst ekki öllu á 7-unni, því miður....ég er gjörsamlega fallin fyrir þessari tegund..almáttugur..Prins, Laila og einn afghan, þá verður líf mitt svo gott sem fullkomið.. og svo náttúrulega Rocky..en hann kemur nú til með að vera eftir hjá M&P þegar kemur að flutningumSmile og svo var það Palli um kvöldið..þrátt fyrir að það hafi verið UPPSELT!!Wink

Saumó á morgun og það enginn venjulegur saumó...dekursaumó uhm.. og ég hlakka svo ferlega til að hitta gellurnarKiss

Kv
Elsa

Prinsinn 5 ára!!

28. október 2008 klukkan 19:23
Jæja núna er litli Prinsinn minn orðin 5 ára....skrítið litli hvolpurinn!!:)





Ekki sérlega góðar myndir af greyinu...en sést allavegana hvað tanið hans er flott;).... hann var ekki alveg til í að láta mynda sig í dag!!:)

Kv Elsa

Fleiri myndir!!

20. október 2008 klukkan 20:24
Jæja best að koma með myndir fyrir ykkur 5 sem skoðið síðuna mínaWink
Annette var að senda mér myndir af Lailu í gær, hún er orðin 3og 1/2 mán. litla krúttið mitt!!Smile





Kannski ekki alveg bestu myndirnar en það sést samt alveg á þeim hvað hún er sæt og eyrun komin upp og alltSmile

Ég verð nú að koma líka með myndir af drengjunum mínumSmile



Prinsinn með ólina hennar Lailu(haha allt snýst um hana þessa dagana)



Rocky dasaður eftir göngu!!


Oh hann er svo fallegur ,,litla, dekurdósin!!Smile

Hundanördið kveður að sinni VOFF VOFF!!Wink

Oh fallegasta stelpan!! ;)

06. október 2008 klukkan 15:54
Almáttugur...finnst ykkur hún ekki sætust????



Þetta er sem sagt hún Exigor's Black Laila....núna undanfarin ár hefur mér fundist tíminn líða of hratt og ég orðin 20 og eitthvað allt of mikið..en núna get ég ekki beðið eftir því að verða 27, gúffa í mig jóla og áramótasteikinni og kveðja svo árið með hvellum, sprengjum, fyllerí og tilheyrandiBrosandi...því í byrjun næsta árs kemst hún Laila loksins heim til sín..ekki það að hún hafi það eitthvað slæmt hjá Annette og Exigor'S genginu síður en svo.. þar er sko hugsað vel um hana og passað vel uppá umhverfisþálfun!!Brosandi


Maður er alveg að tapa hlutföllum og verða lítið slánabarn!!Brosandi

Kv
Elsa

Litla Bjútið!!

29. ágúst 2008 klukkan 16:41


Oh fallega barnið!!Glottandi

Köben og svo Sálarball í Þolló!!

14. ágúst 2008 klukkan 20:03
Núna hef ég frá slatta að segjaBrosandi
Ég kíkti aðeins til Köben um helgina með Tinnu, Karen og Jenný.. alveg geggjuð ferð, mikið verslað og þá meina ég mikið..við vorum svo ákafar í búðunum að okkur var hent út úr búð bæði á fimmtud. og föstud. því það var búið að loka... versluðum sem sagt EINS lengi og við gátum!!Brosandi
Algjörlega geggjuð ferð og takk æðislega fyrir mig girls.. þetta verður sko endurtekið!!!!!!!

Sálin hans Jóns míns er að spila í Ráðhúskaffi um helgina..Guðlaug er heldur betur að standa sig..fyrst Palli og svo Stebbi, aldeilis ánægð með hana...verður svaka fjör örugglega...spurning um að maður skelli sér í einhvern danskan diskógalla!!Brosandi

Hundarnir mínir hafa það fínt.. Rocky reyndar komin með Hotspot aftur..en það er ekkert sem við ráðum ekki við.. ég fer að verða sjálfmenntaður dýrahúðsjúkdómalæknirGlottandi, Prinsinn er reyndar en jafn mjór en við erum að vinna í þessu.. verðum að fara að taka okkur á stutt í sýningu.. verð að fara að bjalla í sýnandANN...tjekka hvort að Berglind M sé ekki  í gírnum..minpin-gírnum!Brosandi

Það er mjög líklega að fara að fjölga um ca 4 fætur á heimilinu snemma á næsta ári.. en ætla ekkert að vera að ræða það meira núna.... allavegana ekki alveg strax..þar sem sumir eru bara 5.viknaBrosandi en eitt get ég sagt ykkur að ég er gjörsamlega að tryllast úr spenningi yfir þessu.. enda er ég búin að bíða eftir þessu í rúm 2ár!!!!

Vinnan að byrja á morgun..ég hlakka mjög mikið til þess að byrja og takast á við þroskaþjálfastarfið en er líka pínu stress...en ég hlýt að meika þetta!!Brosandi

Jæja best að fara að glápa á Tv-ið..eða jafnvel vinna í BA !!!!Glottandi



Auglýsing