ŢOLI EKKI VETUR!!!!
Það er víst einhver gelllu-jólaglögg-hittingur fljótlega.. sem Yfir gæran
Kv Ein ógeðlega pirruð!!
Hundar..hundar..
Svo það nýjasta..Whisper komin úr einangrun.. og það allra allra nýjasta er að ég held að hann sé að fara að vera hjá mér í einhvern tíma....sem verður gaman.. gaman að hafa annan Pinscher inná heimilinu.. góð æfing fyrir litla gullið sem ég eignast ,,bráðum"!
Best að fara að læra..ekki það að ég nenni því!!
Kv Elsa hundaóða!!
Reiđhallarball..loksins!!
Ákvað að taka mér pínu pásu frá lærdómnum og blogga pínu.
Hið árlega Reiðhallarball er um helgina og útskrift hjá Zingfrid(hún er að vísu ekki árleg
) þannig að þetta verður öruglega fínasta helgi, Tvíburamúttan ætlar víst að láta sjá sig..enda mikil hestakona þar á ferð
verst að Hrönn verður eitthvað að þvælast í útlöndum að skoða hálfbera hjólbeinótta gæja
en hún verður bara að mæta á næsta ári..trúi ekki að hún taki fótboltamenn fram yfir hestamenn 2 ár í röð! :)
Núna er Whisper búin að vera í helv... í 2 vikur þannig að það fer að styttast að hann losni. Ég er ekki alveg búin að mynda mér skoðun á þessari nýju einangrunarstöð.... hún fær allavegana ekki 10 svo mikið veit ég...USSS..Pinscher hvolpur lokaður úti í þessum kulda..nei svoleiðs gerir maður ekk!!!!
En þar sem Whisper er hvolpur og ég veit að Ingibjörgu Aðalsteins finnst gaman þegar ég set inn myndir þá ætla ég að koma með nokkra frá því a´ð mýnir voru hvolparr!!![]()



OH mestu krútt í heimi!!![]()
Kv Elsa!!
VOFF VOFF
Ok ţá Helga mín!! ;)
Ég veit ég veit..ekki dugleg að blogga..er ekki einu sinni búin að segja frá Svíðþjóðarferðinni minn..sem var n.b rosalega skemmtileg, Berglind, Viktoría og Whisper frábærir ferðafélagar![]()
Við fórum sem sagt á mánudagsmorgninum 2.okt til Annette að sækja Whisper og þá rættist langþráður draumur hjá mér... Að fá að sjá Exigor's hundana live.. æði.. verst að það var rigning þannig að við gátum ekki verið úti.
Whisper er ÆÐI..það er ekki flóknara en það..og geðslagið í hvolpinum er geggjað..og núna er litla greyið í einangrun..oh hvað það verður gott þegar hann losnar.
Svo er það mál málanna..Óvissuferðin með gellunum mínum á morgun..hlakka geðveikt til...Verður örugglega mergjað þar sem Tinna er er að sjá um þetta, hún klikkar ekki á því![]()
Jæja best að fara og halda áfram með heimaprófið svo ég komst nú í óvissuferðina!!
Kv Elsa
Ekki frá miklu ađ segja en....
Hversu erfitt getur verið að koma sér í lærdómsgírinn....mjög svo..ég er allavegana ekki að komast í hann, er bara engan veginn að geta byrjað..
Ég er eiginlega ekki að ná því að ég sé loksins að fara til Sverige og kíkja á Exgors-kennel (reyndar ekki fyrr en 1.okt en....)og sjá hann Whisper litla krúttið hennar Berglindar og alla hina hundana..þetta verður svo frábært....frá því að ég fór í hundana
þá hefur þetta verið ,,uppáhaldsræktunin" mín, hundarnir hjá henni er SVO flottir og mikill metnaður í þessu hjá henni sem hefur sýnt sig í frábæru gegni á sýningum.. ÆÐI...veit að enginn skilur þennan spenning nema Berglind af þeim sem les þetta
en það verður bara að hafa það![]()
Ég var að skoða síðuna hjá henni Sídu, Inya Dreams ræktun og er hún búin að setja inn nýjar myndir af hvolpunum..og Ó MÆ..geggjaðir.. ég verð/ætla að eignast Chinese Crested í framtíðinni(minnir að ég haf i skrifað það áður hér)..Jú Berglind..þú ert búin að svíkja lit og þá má ég líka..1-1![]()
Jæja komið nóg af hundarugli..en verð nú samt að koma með myndir af flottustu hundum í heimi!!![]()

Ji þeir eru svo flottir!!!!![]()
Kv Elsa
Tölvan komin í lag!!
Skólinn er sem sagt byrjaður... er í rosa spennandi fögum núna..geðraskanir, fötlun og taugasjúkdómar, óhefðbundnar tjáskiptaleiðir, aðferðir í starfi með fötluðum..allt mjög spennó.. svo er ég reyndar líka í inngangur að uppeldisvísindum sem mér finnst frekar boring..er byrjuð að vinna á frístundaheimilinu..sem er bara ágætt..pínu stress að komast inní þetta..passa að enginn stingi af og sonna....en fyrsta vikan gekk bara vel, það verður örugglega nóg að gera í vetur!!
Fór á Akureyri um síðustu helgi..ég, Tinna og Hrönn ákváðum að fylgja Sollu norður..gátum ekki látið hana keyra eina alla þessa leið aleina..ég var í bíl með Sollu og lagði mig sko alla fram í því að henni myndi ekki leiðast á leiðinni..talaði og talaði
Ég held að ég sé á leiðinni til Svergie í okt.. ji hvað það verður geggjað..að fá að sjá Exigor's kennelið/hundana.... ó mæ ó mæ..truflað!!
Jæja best að fara að hvíla sig fyrir dinnerinn hjá Herpó tú night..eins gott að vera í gírnum svo að gærann verði ekki alveg klikk!!
Læt eina fylgja af hundunum þar sem ég talaði ekkert um þá!

Kv Elsa
Ó mć gad!!!
Það var svo gaman á Lanza..geðveikt heitt, geðveikt djamm þarna, frábær félagsskapur, góðar fröllur
En það var svo gott að komast heim..og komast í hundana mína..Prinsinn var ekkert lítið glaður að fá mig heim..grenjaði og grenjaði af gleði og Rocky vissi ekkert hvernig hann átti að láta..þeir söknuðu mín víst mikið
Kv Elsa sem kom kolbika heim frá Lanza!
7 dagar í Lanza!!
Elsu er farið að hlakka svoldið mikið til...bara 7 dagar þangað til við Hrönn förum til Lanzarote...oh hvað það verður gaman...sólbað, djamm, versla(hótelið er við verslunargötuna),sólbað, djamm, sólbað, djamm, gerist það eitthvað betra??..held ekki.
Fór á djammið á föst.með Hrönn og Sollu.. mjög gaman...eða svona þangað til að ég vaknaði..hélt hreinlega að ég myndi ekki hafa þetta af..ógeð ógeð. Fór í góða göngu í Þrengslunum á sunnudaginn með Sollu og Prinsinum mínum, geðveikt fínt að labba þarna..verðum að fara aftur fljótlega....svo fór ég í nokkra klukkutíma hjólatúr með Hönn, Sæla og Loga um kvöldið...ein að reyna að redda einhverju fyrir Lanza..fullseint Elsa mín
.....asskoti fín helgi.
Rocky er orðin nokkuð góður í ,,tánni", farin að hlaupa út um allan garð eins og bjáni, ég fer með hann á morgun að láta taka saumana og þá ættum við að fara að komast allavegana í taumgöngur og sonna.
Kv Elsa göngugarpur ![]()
p.s Berglind ég var að reyna að ná í þig um daginn..það er ekki verið að svara manni!!![]()
Sömuleiđis Berglind!! ;)
Allt gengur eins og í sögu með ,,tánna", það er búið að taka umbúðirnar af og lýtur þetta bara vel út..eða eins vel og loppan á hundi getur litið út eftir að tá er tekin af....Hanna var allavegna ánægða með þetta. Hann er voða duglegur í þessu öllu saman, alveg farin að stíga í löppina, saumarnir verða svo teknir á mánudaginn, þannig að þetta fer ALVEG að verða búið.. oh litla hetjan mín!! ![]()
Ég er búin að mynda loppuna en er að spá í að sleppa því að setja þær inn hér EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! ![]()
Svo ég segi nú frá einhverju öðru en hundunum mínum..
Við í Vinnuskólanum erum að fara í skemmtiferð á morgun, ætlum í Tívolí, út að borða og enda svo ferðina með bíóferð..verður eflaust voða gaman....
Hef ekkert meira að segja í bili..ákvað bara að gera Berglindi til geðs..eins gott að hafa hana góða
Kv Elsa
Táin af!!
Hérna er litli drengurinn minn þreyttur eftir átök dagsins..oh svo mikið rassgat!!
